við erum best .. við erum 1h
Bestu böðlarnir 4.U :P
besta lið í heimi!!!!
20.08.2006 01:16:09 / palan

Dramatísk örlög fyrsta há

Jæja gott fólk...

Í hvaða bekk eruð þið?
Eða, í hvaða skóla farið þið, þið sem haldið ekki áfram í MA?

..fyrir forvitnissakir =)
Ég er í 2F.

PS. 24 dagar í skólasetningu!

» 16 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 20:03:49 / Ingi

Prófatíð búin!

Jæja, 1. ár búið! úff, það er allnokkurn tími...

Vil ég bara þakka fyrir mig, fyrir þetta glæsilega og frábæra 1. ár mitt í menntaskólanum með þessum frábæra og samheldnasta bekk ( allavega fyrri önn ) og ég vona bara innilega að 2. ár verði eins skemmtilegt og það fyrsta... þó ég efi það einhverra hluta vegna...

1. ár búið... líður eins og það hafi bara verið í gær sem að litlu hálvitarnir gengu um kvosina með puttann ínefinu og enn aðrir gangandi eins og ég veit ekki hvað í álpappír...

Já, sannarlega frábært menntaskólaár...



                                                                                            Kv.Ingi

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 16:03:21 / palan

glósur

Hæhæ.
Ætlaði bara að benda ykkur á íþróttaglósurnar sem ég er búin að setja inn.
Gangi ykkur vel á prófinu.

Kv. Pála

P.S. http://blog.central.is/kaffi_hus -Skoða ;)

» 10 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 01:26:37 / Eygló

omg

æjji krakkar hvað er málið gleimdu bara allir að bippi og arnar ættu afmæli í dag/gær (svona því klukkan er bara hálf 2 þá er enþá gær) og bara allt klúðrað jæjja allir núna að segja til hamingju

:haha:TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ STRÁKAR MÍNIR:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 12:59:47 / palan

raksápupáskaR

Sælinú! :)

Vildi bara óska ykkur öllum Gleðilegra Páska! :)

kv. Pála

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 19:35:32 / Valgerður

Baramm bamm

tissss!!!

úúú Valgerður að lifna við:haha:

Endilega ef þið hafið eitthvað að segja, sama hvað það er, setjið það hingað inn:)

Er hérna í draumablárri Dalvíkinni (right).. en hér er sól og blíða og mig dreymir um að fara á skíði. JÁ Valgerður á skíði! Það verður saga til næsta bæjar, og er að spá að skella mér á morgun ef það verður veður til:)

Yndislegt hvað maður verður glaður innra með sér þegar sólin skín. Þó manni leiðist þá gleðst maður alltaf við að fá sólina. Finnst ykkur það ekki? Fínt líka að fá sól og gleði til að jafna sig á þeim draum sem mig dreymdi. Ég hljóp óð um með haglabyssu og skaut mann og annan! Jeeee illa svöl á því.... ummm nei!

Langar að deila því með ykkur hér að Örn okkar sat fyrir aftan goðið sitt Birgittu Haukdal á söngkeppninni og ætlaði að heilla hana uppúr skónum með að biðja hana um nammi! Eins og ég hef sagt áður, grey Örn í sjálfsblekkingum hehe:)

Góðærið á Íslandi að enda og verðbólguár framundan?8|

Ákvað að redda mér úr páskalagamissinum og syngja jólalög í staðinn...

Valgerður Reykjalín - með snjóblindujeppafjallagleraugu á hausnum8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 17:23:51 / Valgerður

raksápupáskar

Vildi bara kasta á ykkur kveðju þar sem ég mun líklegast ekki hitta neitt ykkar þangað til eftir frí!

Strax farin að sakna ykkar:(

Hafið það gott og sjáumst sæt og sæl eftir fríið :D

Af hverju eru ekki til páskalög? Það eru til jólalög sem koma manni í jólaskapið, en af hverju ekki páskalög sem koma manni í páskaskap?

Kv. Valgerður Reykjalín


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 17:58:32 / Ingi

Gettu Betur!

Jújú, eins og margir hafa nú eflaust tekið eftir, þá unnu MA-ingar MH-inga á stórkostlegan hátt.

Byrjað var að fara í 5 rútum sem senn urðu einungis 4, sökum þess að það var nóg pláss eftir samanlagt í rútunum fjórum. Ein rútan lenti í því óhappi að klessa á e-n vörubíl sem var á leiðinni norður ( ekkert alvarlega ) og tók það heillangan tíma að útkljá það mál, þar til við fengum að halda för okkar áfram suður, til Borg Óttans... og ekki skánaði það nú þegar ein önnur rútan var tekin af lögreglunni fyrir of hraðan akstur sem þótti afar fyndið hjá sumum eintaklingum.
Stemning var í rútunni, horft var á Nutty Proffessor og Die Hard svo dæmi má nefna og taldist það hin dágóða skemmtun fyrir unga ferðamenn á vit ævintýranna!

Þegar komið var í Kringluna héldu allir sínar leiðir, sumir sóttust eftir McDonalds, aðrir eftir Dominos og enn aðrir ákváðu að fara bara í Hagkaup og neyta matar þar. En stórgóð skemmtun fyrir þessa menntskælinga.

Þegar loks var komið Fiskislóða þurftu ungir námsmenn að bíða fyrir utan þar til að viðtalinu sem átti sér stað inni myndi ljúka, en brátt lauk því og æstir áhorfendur þeyttumst um salinn í leit af góðum sætum, og fór það bara vel fyrir flesta. Þess má til gamans geta að MH-ingar náðu ei að framfylgja yfirlýsingu sinni um að fylla í sæti MA-inga sökum þess að MR-ingar gerðu það fyrir þá og hvöttu þar með MA-inga vegna svokalls stríðs sem gengur á milli skólanna tveggja MR og MH, sumir vilja meina að þeir séu í vopnahléi en aðrir vita sannleikann að það sé eigi rétt.
Er keppnin hófst og MA-ingar náðu eigi að svara mjög mörgum spurningum réttum í hraðaspurningum bættu þeir það upp með vísbendingaspurningum og mikil kátína færðist yfir í vinstri hluta salarins.
Stigin þeyttust um hægri og vinstri en loks kom að því að MA voru 3 stigum yfir og MH-ingar reyndu við þríþrautina en náðu ei að svara því rétt. Og þá sprungu allir MA-ingar úr gleði því að MA var kominn í úrslit og munu þeir keppa á móti Versló næsta fimmtudag!

Jæja, þetta er nú nokkurn veginn bara komið en ég vil hér með lýsa yfir þónokkurri óánægju minni yfir 1-H vegna mjög lítillar mætingu í þetta skipti (JCS fólk hefur afsökun )! Vil ég sjá mun fleiri 1-H-inga næst og hvetja lið sitt þó þeir eigi ekki nema hálft lunga eftir!

--------------------------------------------------------------------------------
Það jafnast ekki á... við 1-H!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 23:41:25 / axel

Hún á afmæli í dag!

Aldrei í sögu 1.H hefur það komið fyrir að einhver hefur átt afmæli :$ En í dag er það auðvitað hún Pálína sem tekur þetta stóra skref og er þar með hafin yfir alla þessa 16 ára plebba! :!: Hmmmm...já já nóg af þessu! En ég (og vonandi einhverjir fleiri) óskum þér innilega til hamingju með afmælið og lifðu heil!

P.S. Hér eru þeir, þeir sofa enn, flóóónin!!!

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 21:13:26 / palan

Félagsfræðipróf

Hæhó =)

Ætla að minna á félagsfræðiprófið á mánudaginn, úr köflum 1,2 og 10 (sbr. vísunni). Ég setti inn glósur úr köflum 1-4 og 10 sem þið getið skoðað hér.

Vil líka nota tækifærið og auglýsa Jesus Christ Superstar!



Miðapantanir í síma 848-2016.

Kv. Pála =)

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:02:50 / Eygló

ok!!

ok ég skipti um banner og ég veit lame ég bjó hann sjálf til á mér ekkert líf en hvað finnst ykkur ég breyti þessu aftur ef ykkur finnst þetta ljótt
takk takk
kv. Eygló ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 01:36:54 / bippi

PAARRRTTEEEEIIIIII

Já það er nokkuð víst að það er held ég komið að því sem allir hafa beðið eftir. Það verður sko PARRTEEEII núna. Það er held ég búið að ganga frá húsnæðinu og mun þetta kosta 10.000 krónur og deilist það niður á alla sem fara. Þannig ef það er einhver sem kemst ekki láta vita fyrir Fimmtudag helst.

Var það hún Sandra sem var svo góð að redda okkur húsnæðinu. Ég ætla að ræða við hana á morgunn eða hinn um hvernig þetta er með hljóðkerfi og annað slíkt. Þetta á ekkert að vera liggja upp í sófa neitt. Við ætlum öll að vera alveg í mesta stuði sem til hefur verið.

Ég og Arnar erum að spá að sjá um tónlist og allt það nema auðvita einhver annar vilji líka taka þátt í því.
Ætlum að fylla ferðtölvuna hans af mjúsík sem gaman er að dansa við og svona. Ef ykkur langar í einhver sérstök lög þá bara skrifa þau á blað eða í pósti og ég skal reyna ná í eins mikið og ég get. Ég á nú þegar um 15GB af tónlist sem ég tel alveg ágætt.

Enn við ætlum ekki að sjá um þetta einir. Við þurfum fólk sem vill jafnvel skreyta eða e-ð þannig (bara hugmynd). Ég er sjálfur ekki viss hvort við ætlum að borða þarna.
Ef svo er þurfum við kokk og er Axel ekki bara sjálfkjörinn þar sem allt gekk svo vel seinast. En ef einhver vill vera með honum bara láta í sér heyra og við deilum því eins og öllu öðrum

Jebb áfengi verður leift og þeir sem vilja drekka skulum samt sem áður fara hægt í sakirnar. Arnar er búinn að lofa verða spakur (ekki satt Arnar?) en hinsvegar veit ég ekki um restina. Hrönn og Telma voru reyndar með skemmtilegra yfirlýsingar sem ég held að allir ættu bara að fá að sjá í partíinu.

Ef það er e-ð sem þið viljið bæta við, vera með í öllum skipulaginu, eða bara hvað sem er, endilega láta vita hvort sem það er í stofuni eða hvað og við munum auðvita koma þér inn í það sem þér langar að gera.
Þeir sem geta reddað fari þanngað verða mjög vinsælir og fá einkadans frá Arnari eftir að hann er búinn með 6 bjóra + e-ð meira.
Inga mun auðvita þurfa ferma fólk, einnig Kartrín og Valur. Ég er ekki viss hvort Birkir verður kominn með bílprófið enn endilega þau sem geta skutlað gera það :D

EN ÞÁ ER ÞAÐ BARA PARRTTÍÍÍÍÍ !!!!
Ég vill sjá alla vera í loftinu þeim hlakkar svo til !!
Ég vill ekki sjá 1!!!!! í einhverju Down skapi. Þetta verður eitt það skemmtilegasta partí sem hefur verið gert.
Allir commenta og við sjáumst á morgunn í UTN102 það sem vonandi flestir skoða þetta.

Birkir Örn ... gaurinn sem kemur alltaf með löngu blogginn og sá sem mun verða HYPER um í partíinu.

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 19:18:25 / axel

Jahú!!!

Jæja nú er það hann Birkir Guðjón sem á afmæli!!! við óskum honum öll til hamingju og geriði það ekki eiga afmæli alveg strax!!! Þessi Blogsíða er farin að líta út eins og ég veit ekki hvað!!!8| En Innilega til hamingju, Birkir!!!!;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 16:48:28 / axel

Nú er gleðidagur!!!

Ég vildi bara óska honum Vali innilega til hamingju með Afmælið!!!!! :P:P:P Svo verður maður líka að óska þér til hamingju með bílprófið :D:D Allir á rúntinn með Vali!!!



» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 12:27:26 / palan

Til hamingju með daginn Katrín ;*

Hæjó

Ætlaði bara að óska Katrínu Mist til hamingju með daginn  fyrir hönd bekkjarins =)

Kv. Pála

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5